Alcoa Fjarðaál leitar að góðu fólki til sumarafleysinga í kerskála, steypuskála og skautsmiðju í álverinu við Reyðarfjörð. Um er að ræða framleiðslustörf á þrískiptum átta tíma vöktum sem bjóða upp á góðan frítíma. Launin eru góð, starfsfólk hefur aðgang að mötuneyti og boðið er upp á akstur til og frá vinnu. Umsækjendur verða að hafa náð 18 ára aldri, hafa gild ökuréttindi og hreint sakavottorð.
Almennar hæfniskröfur
Dugnaður og vilji til að takast á við krefjandi verkefni
Lipurð í samskiptum og vilji til að vinna í teymi
Sterk öryggisvitund og árvekni
Heiðarleiki og stundvísi
Sumarstarfsfólk þarf að geta unnið samfellt í a.m.k. tvo og hálfan mánuð og möguleiki er á áframhaldandi starfi. Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um. Frekari upplýsingar veitir mannauðsteymi Fjarðaáls í síma 470 eða á starf@alcoa.com. Umsóknir eru trúnaðarmál og verður þeim öllum svarað.
Umsóknarfrestur er til og með laugardeginum 1. apríl.
Takk fyrir. Umsókn þín hefur verið móttekin.
Úps! Eitthvað fór úrskeiðis.
Our offices
Even the all-powerful Pointing has no control about the blind texts it is an almost unorthographic.